Fjölmargir Íslendingar vöknuðu upp við vondan draum þann sjötta október 2008 þegar neyðarlög voru sett í landinu. Allt í einu kom í ljós að allir þessir margrómuðu snillingar í bönkunum voru ekki aðeins með allt niðrum sig heldur líka með skrensuför í brók um allt líka.

Minnst einn viðskiptavinur Wow Air hefur ekki fengið svo mikið sem píp vegna kvörtunar þrátt fyrir rúmlega SEX MÁNAÐA bið. Mynd Caribb

Sú upplifun hefur ekki haft nokkur áhrif á stóran hluta landsmanna sem enn telja flotta innlenda milljarðarmæringa megastjörnur og göfugmenni hin mestu. Dæmdir stórglæpamenn ganga enn um götur hnarreistir og án þess að nokkur hafi nokkuð við það að athuga. Hin meðfædda meðvirkni landans eða kannski allar þessar pillur sem annar hver maður er að éta í tíma og ótíma?

Ritstjórn Fararheill hefur fengið duglegar pillur frá lesendum gegnum tíðina þegar við bendum á að flugfélag Skúla Mogensens sé nú kannski ekki alveg þessi gimsteinn sem aðrir fjölmiðlar vilja vera láta. Sjéffinn er jú flottur og funheitur piparsveinn og ekki skemma þessar þrususkemmtilegu myndir á samfélagsmiðlum af staffinu að missa sig úr hamingju. Þrettán mánuðir greiddir og allt svo frábært!

Víkur þá sögu að viðskiptavinum Wow Air sem margir brosa ekki sínu breiðasta þó staffið sé alltaf í stuði. Til dæmis Shane O’Reilly nokkur sem var ekki alfarið sáttur við sitt eftir flug með Wow Air sumarið 2016.

Þann 28. ágúst 2016 sendi O’Reilly kvörtun til Wow Air og fékk sérstakt þjónustunúmer úthlutað við það tækifæri.

Á þeim sjö mánuðum sem liðnir eru síðan O’Reilly sendi inn kvörtun sína hefur hann ítrekað beiðni sína ÁTTA SINNUM alls.

Enn þann dag í dag, 22. mars 2017, hefur O’Reilly ekki fengið eitt einasta svar frá Wow Air. Flugfélagið hundsar þennan viðskiptavin sinn eins og hann sé með graftarbólur og hundaæði.

Vel kann að vera að lesendur yppti öxlum yfir þessu. Þetta er jú bara einhver útlendingur sem enginn þekkir og öllum er sama um. En ef Wow Air gefur skít í kvartanir útlendinga, sem er jú stærsti hluti farþega Wow Air, er aðeins tímaspursmál áður en Íslendingar fá löngutöng líka séu þeir ekki sáttir við eitt eða annað…