Það var og. Sá einstaklingur sem hefur opinberlega státað sig af því að fjölga ferðafólki til Íslands um fleiri milljónir á örskömmum tíma til að sjá eitt fegursta land heims, vill ekki sjá neina gesti á þeim landssvæðum sem kappinn á sjálfur.

Allir velkomnir til landsins með Wow Air Skúla Mogensen en dirfist ekki að koma nálægt landareignum Skúla sjálfs. Hversu sorglegir geta milljarðamæringar orðið…

Sú var tíð að við hér hjá Fararheill höfðum fulla trú á Skúla Mogensen. Við höfðum meira að segja trú þegar almennt var hlegið að kappanum af fjárfestum og öðrum milljarðamæringum þegar hann ákvað að eyða sínum fjármunum í stofnun nýs flugfélags. Við héldum reyndar að hinn danskættaði Mogensen væri nokkrum skörum ofar en þessi normal fjárfestingaplebbi á klakanum sem er og hefur ætíð verið slétt sama um viðskiptavini þeirra fyrirtækja sem viðkomandi á peninga í.

En öll vötn falla til Dýrafjarðar að því er segir í Gísla sögu Súrssonar og að sama skapi fellur Mogensen í sömu grúppu og þeirra sem hlógu að honum 2011 þegar hann hófst handa við að koma Wow Air á fót og flug. Honum er slétt sama um sína eigin viðskiptavini.

Frábært dæmi um það má finna á vef hins misgóða Eiríks Jónssonar, blaðamanns og bloggara. Þar er greint frá því að Mogensen, sem keypti fyrir allnokkru hina vinsælu jörð Hvammsvík í Hvalfirði, vill ekki fyrir nokkurn mun sjá lifandi mann þar á vappi. Svo mjög er Skúla í nöp við ferðafólk að grimmur hundur er til taks á landareigninni ef einhver Frakki, Slóveni, Tyrki eða Tælendingur skyldi nú álpast til að rölta fjörur við Hvammsvík. Grimmur hundur bíður þeirra samkvæmt fregn Eiríks.

Gaman að þessu. Nú þurfa bara allir hinir sem eiga landspildu á fallegum stöðum í landinu að fjárfesta í grimmum hundum og þá fækkar fljótlega til muna þeim er áhuga hafa að heimsækja Ísland með Wow Air.