Ferðaþyrstir ættu að vita að frá og með næsta vori kemst fólk í beinu flugi héðan til borgarinnar Montréal í Québec í Kanada og það með báðum íslensku flugfélögunum, Wow Air og Icelandair. En hvor er að bjóða betur?

Fögur er hlíðin og Montréal ekki mikið verri.

Fögur er hlíðin og Montréal ekki mikið verri.

Þó langt sé í jómfrúarflug beggja aðila er þegar hægt að bóka flug fram og aftur en bæði flugfélög hefja formlega ferðir í maímánuði. Fararheill fór á stúfanna og kannaði hvor þessara aðila er að bjóða lægra verð.

Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er það Wow Air sem býður lægstu fargjöldin alla sumarmánuðina. Það er þó einungis raunin ef þú tekur engan farangur með. Vissulega ekki útilokað að láta korselettið og spjaldtölvuna duga í vikuferð til Montréal og greiða ekkert aukalega fyrir töskudruslu.

En við erum Íslendingar og raunin oftar en ekki að við tökum búslóðina með okkur út og bætum verulega við kílóum í verslunum Montréal áður en haldið er til baka. Við þær kringumstæður er Icelandair að bjóða lægsta verð og það í júní, júlí og ágúst.

Wow Air, sem fyrr samkvæmt könnunum Fararheill, getur því aðeins titlað sig lággjaldaflugfélag ef farþegar þess ætla ekkert að skipta um föt í ferðinni né heldur kaupa einn einasta hlut í erlendum verslunum.

* Úttekt gerð kl. 14:30 hjá báðum aðilum samtímis. Fundið lægsta verð á flugi aðra leið til Montréal fyrir einn einstakling.