Ferðaskrifstofur erlendis virðast vera að ganga af göflunum. Útsölur hjá þeim mörgum þessi dægrin og hægt að gera kjarakaup hafi fólk hraðar hendur. Með þeim hætti er til að mynda hægt að njóta viku á ágætu hóteli í ljúfum strandbæ í Túnis í Afríku með mat og drykk niður í 44 þúsund á mann miðað við tvo saman.

Miðbær smábæjarins Port el Kantaoui í Túnis en þangað kemst fólk fyrir lítið í nóvember. Mynd John Morris
Ekki nokkur skapaður hlutur að því verði en við Frónbúar þurfum að bæta við flugi til Gatwick og heim af ferð lokinni. Wow Air þar til bjargar og þar smellpassa dagsetningar og flugið fram og aftur fæst niður í 24 þúsund á mann þegar þetta er skrifað en þar reyndar ekki farangur með.
Alls ferðin því 68 þúsund krónur á mann með þessu laginu sem verður seint talið okurverð fyrir viku á fjögurra stjörnu hóteli með öllu.







