Samkvæmt mörgum spám gæti svo farið að megnið að þeim eyjum sem sameiginlega eru þekktar sem Maldive-eyjar verði horfnar sjónum við lok þessarar aldar. Hækkandi sjávarmál mun fyrr en seinna sökkva þeim öllum vel í sæ.

Ahhhh. Ef englar fengju að hanna stað á jarðríki væru Maldive-eyjur líklega niðurstaðan. Mynd Mohamed Lujaz Zuhair
En það er ekki aðeins að eyjurnar séu á hverfandi hveli heldur eru þær líka af mörgum taldar mögnuðustu strandstaðir veraldar. Kemur þar til silkimjúkur sandurinn og svo tær sjórinn að hvergi finnst annað eins. Það einmitt ástæða þess að hér finnast aðeins lúxushótel og dvöl yfirleitt í allra dýrasta kanti. Nema á köflum þegar inn detta tilboð sem eru of góð til að sleppa.
Eitt slíkt býðst núna frá London með flugfélaginu Emirates gegnum Abu Dhabi frá apríl og fram í júní á næsta ári. Þar um að ræða vikudvöl á þriggja stjörnu stað með öllu inniföldu og möguleika á framlengingu frá 183 þúsund krónum á mann miðað við tvo saman.
Það kann að virðast heldur kostnaðarsamt fyrir þá sem ekki þekkja til en reyndin er sú að hingað er yfirleitt ekki komist eða dvalið mikið niður fyrir 300 þúsund krónur á mann að lágmarki. Þessi ákveðna ferð þeirrar virtu ferðaskrifstofu Kuoni í Bretlandi er nú seld með tæplega hundrað þúsund króna afslætti.
Sá afsláttur plús að vel er hægt að finna og bóka ódýrt flug til London og heim aftur með góðum fyrirvara þýða að þú getur notið lífsins með maka eða ástvini á sérstaklega stórkostlegan hátt í vor kringum 400 þúsund alls. Það er góður díll á öllum tungumálum.







