Einhver kann að hugsa okkur vont til glóðar vegna fyrirsagnarinnar. Eins og London sé ekki og hafi ekki verið um ár og aldir stórborg í öllu tilliti!

Loks næturlestakerfi í London. Skjáskot
Án þess að gera lítið úr London, þó margt sé þar miður, þá er eitt sem London hefur aldrei boðið upp á sem þó má finna í velflestum stærri borgum heims: næturlestir.
Nú loks sér fyrir endann á þeim ófögnuði. Því jafnvel þó stöku strætisvagnar rúlli um götur borgarinnar að næturlagi þá er það jarðlestakerfi borgarinnar sem er ásinn í erminni og það er fyrst í nótt, 20. ágúst 2016, sem borgarbúar og ferðamenn geta tekið lest til síns heima eða annað allan sólarhringinn.
Reyndar er hér björninn ekki unninn því lestirnar munu aðeins ganga að næturlagi um helgar svona fyrst um sinn. Það þó stórgott að vita fyrir þá sem best njóta sín í borginni fram eftir nóttu enda bæði ódýrt og vandræðalaust að skjótast með lest meðan leigubílar eru fokdýrir og strætisvagnarnir fara alltaf Krísuvíkurleið um trissur.







