Sannarlega fækkar þeim jafnt og þétt sem kaupa og eða lesa dagblöð hérlendis sem erlendis og líklega fleiri hér á landi sökum þess hve íslensk dagblöð eru hörmulega léleg. Þeir sem þó fletta þeim hafa eflaust tekið eftir að aldrei nokkurn tíma áður hafa ferðaskrifstofurnar auglýst jafn mikið eða jafn ódýrar ferðir.

Drjúg verðlækkun á sólarlandaferðum ára á milli 🙂
Við köllum þetta að komast inn í nútímann enda hafa velflestir aðrir í hinum vestræna heimi komist að því að langbestu ferðirnar og þær ódýrustu líka eru þær sem við skipuleggjum sjálf.
Það var lengi vel töluvert flókið mál fyrir Íslendinga sökum þess að hér var fákeppni á flugleiðum og er reyndar enn að hluta til. Hvaða einstaklingur yfir þrítugu man ekki eftir að borga hátt í hundrað þúsund krónur fyrir að skjótast heim til Íslands frá Evrópu yfir jólin og til baka að þeim loknum. Þetta á þeim tíma þegar tvö hundrað þúsund krónur voru nánast mánaðarlaun fyrir verkafólk í landinu. Allt í boði Icelandair.
En nú er dæmið að snúast við og þó fyrr hefði verið. Með tilkomu tuttugu til þrjátíu erlendra flugfélaga til Keflavíkur á ársgrundvelli í ofanálag við gott gengi Wow Air getur landinn nú heimsótt æði mörg ríki heims án þess að maxa kortin og hækka heimildina í bankanum.
Við greindum frá því árið 2011 að samkvæmt franskri könnun þá voru 49 prósent Frakka sem skipulögðu sín eigin ferðalög og hundsuðu geldar pakkaferðir ferðaskrifstofa alfarið. Engum þarf að koma á óvart að hlutfallið nú er 62 prósent.
Og nú má loks sjá afleiðingar þess að við hér í ballarhafi höfum úr svo miklu að moða ef við kjósum að skipuleggja eigin ferðir í dagblöðunum. Varla líður dagur að við sjáum ekki heilsíðu eftir heilsíðu frá innlendum ferðaskrifstofum og lýsingarorðin stækka dag frá degi. Hjá Nazar hefur nánast verið óslitin útsala á ferðum frá því í apríl. Bæklingar Heimsferða og Úrval Útsýn frá því í vetur þar sem „allra besta“ verð á ferð bauðst eru löngu úreltir og tilboð þeirra að undanförnu töluvert lægri en fyrirtækin voru að auglýsa fyrr í vetur. Stöku ferðir til Spánar eru komnar vel undir 50 þúsund krónur á mann. Fyrir aðeins tveimur árum var vonlaust að finna sólarferð undir 70 þúsund á haus hjá sömu ferðaskrifstofum. Það er 55 prósenta verðlækkun á skömmum tíma.
Fararheill hefur svo sem ekkert á móti innlendum ferðaskrifstofum annað en að þær hafa hingað til smurt allt of duglega á allar sínar ferðir út í heim. Ef einhverjum þykir viku sólarlandapakkinn undir 50 þúsund stórkostlegt mál nægir að benda á að gegnum fyrirtæki á borð við easyJet má komast til Mallorca, Costa del Sol eða Algarve í vikustund niður undir 30 þúsund krónur frá Bretlandi. Eða finna golfferðapakka á hálfvirði frá Bretlandi miðað við Íslandið.
Lesendur okkar vita mætavel af okri hérlendis enda við bent á ófá dæmi gegnum tíðina. Það þess vegna frábær tíðindi að sjá þessa miklu samkeppni meðal ferðaskrifstofanna. Sannarlega kominn tími til 🙂







