Tíðindi

Ljúfa lífið á Kanarí á lágmarksverði

  09/10/2012febrúar 4th, 2014No Comments

Oftar en ekki eru fargjöld ferðaskrifstofanna íslensku til Kanaríeyja mikið til keimlík og hingað til ekki mikið á því að græða að gera verðsamanburð þar sem aðeins sparast örfáir þúsundkallar í besta falli. Þetta virðist þó, góðu heilli, aðeins vera að breytast.

Nú býður ferðaskrifstofan Heimsferðir rúmlega þriggja vikna ferð til Playa del Inglés, Ensku strandarinnar, á Kanarí í lok þessa mánaðar fyrir aðeins 149.900 krónur á mann miðað við tvo saman. Sé mið tekið af því að umrædd ferð er 23 daga löng þýðir þetta að kostnaður á mann per dag er aðeins rúmar 6.500 krónur.

Það er makalaust gott verð til Kanarí og reyndar skjagar vel upp í ódýrustu ferðir sem í boði eru frá öðrum Norðurlöndum eða Bretlandseyjum. Vissulega er ekkert fæði innifalið á því hóteli sem hér um ræðir en það er engu að síður þriggja stjörnu og fær alveg bærilega einkunn á vefmiðlinum Tripadvisor.

Til samanburðar má nefna að ódýrasta ferð Úrval Útsýn til sama staðar á Kanarí og á svipuðu hóteli kostar 179.900 á mann og er sú ferð jafnframt styttri en ferð Heimsferða eða aðeins 20 dagar á móti 23. Sé það reiknað í kostnað á mann per dag er niðurstaðan rétt tæpar 9.000 krónur.

Það kann kannski að virðast sem lítill munur sé á upphæðum í þessum samanburði en til að setja þetta í annað samhengi þá kostar 23 daga ferðin fyrir tvo alls 299.800 krónur meðan styttri ferð ÚÚ kostar í heildina 359.800 krónur. Það er 60 þúsund króna mismunur sem hægt er að eyða í mat og drykk og dúllerí.