Þennan daginn skýtur Icelandair út nýjum hraðtilboðum til handa ferðaþyrstum. Alltaf jákvætt þegar flugfélögin bregða fyrir sig betri fætinum gagnvart landanum en kannski helst til aumingjalegur afsláttur.

Hraðtilboð dagsins. En óhætt að geyma kampavínið aðeins lengur. Skjáskot
Það er tæpur sólarhringur, þegar þetta er skrifað, síðan Fararheill framkvæmdi verðúttekt á flugferðum Icelandair til Washington D.C. í Bandaríkjunum og þar sem flug þangað er meðal þeirra tilboða sem nú er í gangi er samanburður auðveldur í meira lagi.
Í ljós kemur að afsláttur á hraðtilboði flugfélagsins umfram það sem var lægst í boði áður aðra leið til Washington D.C. er svo mikið sem 2.315 krónur!!! Afslátturinn nemur aðeins átta prósentum.
Washington er þó ekkert einsdæmi. Hraðtilboðið til Parísar kostar manninn 17.900 aðra leið. Lægsta verð sem flugfélagið býður almennt þá leiðina er 18.455 krónur. Verðmunurinn hér heilar 555 krónur eða aðeins þrjú prósent!!!
Sorrí Stína en þetta eru ekki merkileg „tilboð“ á neinu tungumáli.







