Í  heimi flugdrekaáhugamanna kemur aðeins til greina að vera á einum stað í veröldinni í september annað hvert ár.

Himinninn yfir Dieppe fyllist af mörg þúsund misglæsilegum flugdrekum annað hvert ár.

Himinninn yfir Dieppe fyllist af mörg þúsund misglæsilegum flugdrekum annað hvert ár.

Sá staður er borgin Dieppe í Frakklandi. Þar um miðjan september fer fram á tveggja ára fresti stærsta flugdrekahátíð Evrópu og það er sannarlega sjón að sjá.

Tugþúsundir áhugamanna og annarra ferðamanna fylla bæði borgina og ekki síður himininn yfir borginni af lit en fjölmargir erlendir einstaklingar koma hingað ár eftir ár og margir með flugdreka af því taginu sem munu aldrei fást í Rúmfatalagernum. Þvert á móti undirbúa metnaðarfyllstu keppendurnir sig um margra mánaða skeið fyrir viðburðinn.

Viðburðurinn skemmtilegri en margur heldur í fyrstu. Jafnvel fólk sem engan áhuga hefur setur sig niður í klukkustund eða tvær til að fylgjast með dýrðinni.

Heimasíða hátíðarinnar hér.