
Aumingja við. Eitt besta flugfélag síðari ára hættir við beint flug til og frá Íslandinu góða.
Engar fréttir fyrir vitiborið fólk að norska lággjaldaflugfélagið Norwegian hefur barist fjárhagslega í bökkum um tveggja ára skeið. Þann tíma hefur flugfélagið samt að mestu viðhaldið áætlunarflugi sínu til og frá Íslandi og þá helst til príma áfangastaða eins og Alicante og Barselóna og verð á fluginu ekki hækkað nein ósköp þrátt fyrir allt.
En fróðir segja að allir góðir hlutir taki enda og það á svo sannarlega við um ferðir Norwegian til og frá Íslandinu góða.
Við hér þrætt vef flugfélagsins burt og suður líka og af því rápinu má slá föstu að ódýrar flugferðir með Norwegian á sólarslóðir yfir dimmastan tímann á Fróni eru fyrir bí. Við finnum alls engar beinar flugferðir með Norwegian frá Íslandi til Spánar fram til ágúst á næsta ári.
Ekki halda þó að í ágúst á næsta ári séu beinar flugferðir í boði á ný. Svo er ekki. Raunin bara sú að fargjaldadagatal Norwegian nær ekki lengra fram í tímann en það.
Hræðilegar fréttir að okkar mati. Þegar best lét komumst við til Alicante og heim aftur með þeim norsku fyrir tuttugu þúsund kallinn án farangurs. Nú verðum við aftur að fara að sætta okkur við fákeppni dauðans með tilheyrandi feitum fargjöldum 🙁







