Fyrirtækið Kreditkort auglýsir nokkuð reglulega kosti þess að vera með sérstök Icelandair American Express kreditkort og básúnar að með slíku korti sé hægt að vinna sér inn bæði vildarpunkta en ekki síður svokallaðan félagamiða. Með svoleiðis miða getur kortaeigandinn boðið einum einstaklingi með sér í utanlandsferð.

Félagamiðar langsótt fyrirbæri
Með tilliti til að fyrirtækið auglýsir að það sé „auðvelt að bjóða góðum félaga með til útlanda“ lék Fararheill forvitni að vita hversu margir slíkir félagamiðar hefðu verið gefnir út síðustu árin og óskuðum eftir upplýsingum frá fyrirtækinu.
Við gerðum það vegna þess að við teljum ALLS EKKI auðvelt að vinna sér inn slíkan miða með tilliti til að kortaeigandi þarf að eyða 3,6 milljónum króna með American Express korti sínu á tólf mánaða tímabili til að fá eitt stykki félagamiða.
Til að geta eytt á einu og sama korti, sem nota bene er alls ekki tekið hjá fjölda fyrirtækja, fyrir 3,6 milljónir þarf viðkomandi að vera með vel yfir fimm milljónir króna í árslaun og greiða fyrir allt sitt með kortinu allt árið. Sem er langsótt í meira lagi. Ekki breytir miklu að „aðeins“ þarf að eyða 3,2 milljónum króna fyrir þá sem eru með premium kort.
Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands var meðaltal heildarlauna á Íslandi 2014 um 555 þúsund krónur. Einstaklingur með þau meðallaun fær samtals 6,6 milljónir í laun á ári en þá á herra Skattmann eftir að taka sinn hluta og lífeyrissjóðir og ýmsar krumlur aðrar.
Þið sjáið væntanlega hvert við erum að fara með þetta. Því ætti varla að koma á óvart að við höfum ekkert heyrt frá Kreditkorti enda líklegt að sá fjöldi fólks sem „auðveldlega“ hefur orðið sér úti um félagamiða sé ekki langt fyrir ofan núllið.
Hins vegar þarf ekkert að kaupa dýrar vörur í heilt ár til að njóta ávinnings af bókunarvél Fararheill sem tryggir þér lægsta verð á gistingu um víða veröld 🙂







