Með tilkomu sífellt fleiri, fjölbreyttari og betri leitarvéla, appa hvers kyns og annarra tækninýjunga hefur sjaldan verið eins auðvelt fyrir ferðaþyrsta að finna nákvæmlega það sem leitað er að og það yfirleitt á sæmilega skömmum tíma. En stundum er fjallabaksleið betri kostur en malbikið.

Það er upp og niður hjá flug- og ferðaleitarvefum nútímans hversu mikla og nákvæma þjónustu þær veita. Sumar þeirra, eins og Dohop Go, geta bent okkur á, mánuði fram í tímann hvenær hagstæðast er að fljúga ákveðna vegalengd. Slíkt getur sannarlega komið í þarfir. Segjum sem svo að hjón langi til Prag og leiti hjá Dohop á ákveðnum dagsetningum. Þá finnst til dæmis þetta hér:

dostuff8

Hreint ekki afleitt verð á mann fram og aftur til hinnar tékknesku Prag en vissulega þarf að dvelja stundarkorn á Kastrup í Kaupmannahöfn enda ekki beint flug milli Íslands og Tékklands. Ef viðkomandi hjón kíkja á vef Dohop Go á að finnast lægsta verð sem Dohop finnur gróflega kringum þennan tíma í svipaðan dagafjölda. Í þetta skiptið finnst ekkert á lægra verði eins og sjá má hér:

dogo

Af þessu má ráða að það er fínasta hugmynd að bóka bara strax þá daga sem fyrst komu til greina. Eða hvað?

Sannarlega er verðið gott til Prag en hafa skal í huga að í þessum tilfellum skilar Dohop aðeins verði sem í gildi er þær sekúndur sem leit stendur yfir. Eins og allir sem flakkað hafa um bókunarvélar flugfélaga vita breytast verð mjög ört hjá velflestum aðilum. Endrum og sinnum lækkar þar verð líka þó algengara sé að verð fari upp á við. Hvað ef einhver aðili þarna úti ákveður að bjóða einhver fantagóð tilboð til Prag á morgun? Þá yrði súrt að kaupa flugið nú eða hvað? Og hver nennir að hanga lon og don, kvöld eftir kvöld, yfir ferðaleitarvélum fyrir nokkra hundrað- eða þúsundkalla?

Svarið er að þú þarft þess ekki. Þú lætur verðvaka, fare alert, vinna fyrir þig.

Ein úr ritstjórn hélt til til Dóminíkanska um miðjan janúar 2015 í mánaðarferð. Leit að sem lægstu fargjaldi hófst í maí árið áður og þá fannst ekkert frá Íslandi til Dóminíkanska undir 126 þúsund krónur í janúarmánuði. Tveimur mánuðum síðar fannst fargjald alla leiðina á 82 þúsund krónur. Það er vænn verðmunur.

Viðkomandi gerði ekkert annað en bíða og notast við fare alert tilkynningar en upp á slíkt bjóða velflestar flug- og ferðaleitarvélar. Þær virka sérstaklega vel ef langt er í ferð og stressi ekki fyrir að fara. Þá er aðeins hakað við „fare alert“ á leitarvélum eins og Dohop, Momondo, FareCompare eða öðrum og daglega í kjölfar þess koma tilkynningar í pósthólfið um hvort fargjald á viðkomandi flugleið hefur hækkað eða lækkað.