Sem kunnugt er kyrrsetti Ísavía eina þotu þýska flugfélagsins Air Berlin á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku vegna þess sem sagt er vera vanskil á afgreiðslugjöldum á flugvellinum. Tímasetningin er merkileg.

Loka fyrir flug Air Berlin nokkrum mínútum áður en Icelandair hefur áætlunarflug til Berlínar. Það er merkileg tilviljun. Mynd Isavía
Illu heilli tóku forsvarsmenn Air Berlin vægast sagt illa í inngrip Ísavía. Svo illa að Air Berlin flýgur ekki lengur til Íslands. Lögfræðingar Air Berlin segja um ólöglegt inngrip að ræða en því hafnar talsmaður Ísavía alfarið. Heimild sé í íslenskum lögum til að stöðva og stoppa vélar hvers eigandi hefur ekki greitt sitt. Sá gefur þó alls ekki upp hversu mikið Air Berlin skuldar en blaðafólk fullyrðir að upphæðin sé „lægri en sem nemur andvirði þotunnar.“
Þó það nú væri. Eitt stykki nýlega þota af þeirri gerð sem Air Berlin notar mikið kostar ný tæpa tíu milljarða króna. Þó ekki vilji Ísavía gefa upp heildarskuldina þá getur ekki verið að hún nemi hærri upphæð en nokkrum milljónum. Tugmilljónum í versta falli.
En fyrir þessu er sæmileg ástæða. Air Berlin er í greiðslustöðvun enda lýsti flugfélagið yfir gjaldþroti í ágúst síðastliðnum og síðan þá hafa forsvarsmenn þess reynt að bjarga því sem bjargað varð. Það, samkvæmt erlendum fregnum, tekist. Risaflugfélagið Lufthansa hefur samþykkt að kaupa stóran hluta af flugfélaginu og fréttir þess efnis hafa birts nú um tveggja vikna skeið. Og Lufthansa er stærsta flugfélag Evrópu.
Það því þokkalega eðlilegt að engar greiðslur komi frá Air Berlin meðan verið er að gera flugfélagið upp. Þokkalega óeðlilegt að beita allra hörðustu refsingu meðan verið er að afgreiða hlutina í Berlín og þokkalega ljóst liggur fyrir að stærsta flugfélag Evrópu gæti greitt áfallin gjöld Air Berlin án þess að blása úr nös þegar allt er frágengið.
Ákaflega mikið fagnaðarefni fyrir ferðaþjónustuna í landinu að missa Air Berlin enda þúsundir Þjóðverja sem frá þurfa að hverfa í Norðurljósin og hvalaskoðunina og morgunverðinn á rándýru hótelinu í miðbæ Reykjavíkur. Ekki!
En það vakna fleiri spurningar við þessa harkalegu aðgerð Ísavía. Þetta er einstaklega frábær tímasetning fyrir Icelandair, sem merkilegt nokk er að hefja reglulegt áætlunarflug til Berlínar í byrjun nóvember og auðvitað að heimta töluvert hærri fargjöld en Air Berlin.
Hvers vegna Icelandair?
Jú, það er velþekkt að forstjóri Ísavía, Björn Óli Hauksson, er góðvinur þess flugfélags. Ekki aðeins eru höfuðstöðvar Ísavía við hlið höfuðstöðva Icelandair heldur og dúllaði Björn Óli sér reglulega með konunni sinni í ferðum með Icelandair á kostnað Ísavía áður en upp komst. Björn Óli er líka „on record“ að segja að „hagsmunir Ísavía og Icelandair falli saman.“
Helber tilviljun?







