Svo gæti farið að starfsemi Airbnb verði takmörkuð til muna frá því sem nú í Evrópu. Fjölmargar borgir álfunnar hafa nú formlega kallað eftir að framkvæmdastjórn ESB láti alvarlega til sín taka gegn leigurisanum bandaríska.

Airbnb kemur sér sífellt meira upp á móti borgaryfirvöldum í evrópskum borgum. Það mun hafa afleiðingar.
Stjórnvöld í nokkrum stórborgum Evrópu hafa nú formlega óskað aðstoðar Evrópusambandsins á yfirgangi og eilífu veseni gagnvart Airbnb en vandamálin sem borgirnar standa frammi fyrir eru keimlík þeim er við þekkjum úr íslensku höfuðborginni.
Meðal borganna sem hér um ræðir má finna Amsterdam, Madríd, Barcelóna, Vín, París og sjálft höfuðvígi ESB, Brussel. Vekur reyndar athygli hversu fáar borgirnar eru miðað við óöld víða vegna viðamikillar starfsemi Airbnb. Aðrar borgir sem hafa upplifað mótmæli á götum úti vegna leigurisans síðustu misserin eru til dæmis Malaga, Edinborg, Lyon, Róm, Kraká, Lissabon, Berlín og Dublin.
Borgirnar krefjast þess að ESB setji Airbnb og öðrum svipuðum íbúðaleigum skýrar reglur sem gilda munu fyrir Evrópu í heild. Þess einnig krafist að Airbnb láti borgaryfirvöldum í öllum borgum Evrópu tölfræðiupplýsingar um hagnað, fjölda leigudaga og leigusala. Hingað til hafa Bandaríkjamennirnir hafnað alfarið að upplýsa um leigjendur eða fjölda leigudaga en öðruvísi er ómögulegt að hafa hendur í hári þeirra sem moka inn seðlum án þess að greiða tilskilin gjöld og skatta eða þeirra sem leigja út húsnæði sem ekki stenst almennar kröfur svo aðeins tvö dæmi séu tekin.
Með tilliti til stærðar borganna sem hér um ræðir má fastsetja að framkvæmdaráð ESB mun fara yfir málið og taka afstöðu. Miðað við hve algeng mótmæli gegn Airbnb hafa verið skal engan undra ef ESB samþykkir að setja lög á íbúðaleigur í sambandinu. Lög sem þá einnig næðu til Noregs, Sviss og Íslands ef af verður sökum EES samningsins.
Gott mál ef af verður. Ekkert gaman að heimsækja erlendar borgir og hitta bara aðra erlenda ferðamenn.







