Til marks um að heimur versnandi fer hafa yfirvöld í breska bænum Warrington í Cheshire skíri brugðið á það ráð að banna kossa á lestarstöð bæjarins.
Er bannið tilkomið vegna þess að kyssandi fólk var talið tefja aðra ferðalanga en umferð á viðkomandi lestarstöð hefur snaraukist eftir að nýjar lestir tóku til starfa á þessari leið.
Hefur bannið vakið hneykslan margra enda næsta sjálfsagður hlutur að kyssa ástvini, fjölskyldu eða vini bless og furða sig einnig margir á því hver viðurlögin séu við slíku kossaflensi. Talsmaður Virgin lestarfyrirtækisins sem styður bannið segir það verða gert á raunsæjan máta. Hvað svo sem það þýðir.






