Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir Ferðamálastofu Íslands hyggjast aðeins 31,7 prósent aðspurða halda í borgarferðir erlendis á árinu. Eru það töluvert færri en jánkuðu samsvarandi spurningu á vef Fararheill.is þar sem 64 prósent ætluðu sér erlendis á árinu.
Kann að vera að munurinn liggi í að spurt er sérstaklega um borgarferðir af hálfu Ferðamálastofu en í könnun Fararheill var spurt um ferðir erlendis.
Sé það rétt má ætla að 32 prósent ætli sér í borgarferðir en önnur 32 prósent í annars konar ferðir erlendis á þessu ári.






