Tæplega tveir mánuðir síðan nokkrir fyrrverandi toppstarfsmenn Wow Air tilkynntu stofnun nýs lággjaldaflugfélags, blésu í lúðra og blöðrur, leigðu Hörpu fyrir milljónir króna og héldu svo partí fyrir sjálfa sig á dýrasta stað landsins. Síðan hefur ekki heyrst múkk um eitt né neitt.

Hvað er að frétta af Play? Ekki neitt…
Létt gúggl leiðir í ljós mörg hundruð greinar um flugfélagið Play. Allir fjölmiðlar landsins keyptu boðskap fjögurra fyrrverandi starfsmanna Wow Air um stofnun nýs íslensks lággjaldaflugfélags án þess að spyrja eins og einnar spurningar.
Tæplega sextíu dögum síðar bendir EKKERT til þess að flugfélagið Play sé að hefja starfsemi á þessari öld. Fyrirtækið leitar, að því er fregnir herma, enn kjölfestufjárfestis til að lokka aðra að borðinu með fjármagn en lítið gengur í þá áttina.
Sem er bölvuð synd. Þó herra Mogensen og hans fólk hjá Wow Air væru engir englar þá var samkeppnin í flugi til og frá landinu vel þegin. Það væri óskandi að Play næði fjármagni til að negla flug til og frá landinu og veita Íslendingum smávegis val á nýjan leik. En leiða má feit rök fyrir því að ef ekkert er að gerast tveimur mánuðum eftir að forsvarsmenn lofa fögru eru líkurnar á pari við lungnasjúkling á líknardeild. Sem sagt engar…







