Mörgum þeim sem með fréttum fylgjast hefur komið á óvart hvað Bandaríkin virðast sleppa við kórónufaraldurinn sem nú hefur blossað upp í 48 löndum heims. Aðeins sextíu tilfelli sem vitað er um í þessu risastóra landi þegar þetta er skrifað.
Sextíu tilfelli í 350 milljón manna landi er brandari og enginn að fara að breyta Flórídaplönum vegna þess lags smáræðis. „Litla” Ítalía glímir við 500 tilfelli til samanburðar. Hættan lítil sem engin ekki satt?
En flagð er oft undir fögru og líklega má telja að tilfellin vestanhafs séu töluvert miklu fleiri en opinberar tölur gefa til kynna. Nægilega mörg til að setja spurningarmerki við ferðir þangað svona næstu vikur og mánuði.
Spurningarmerkin eru þessi:
A) Forseti Bandaríkjanna hefur skorið niður fjárframlög til heilsugæslu landsins um hundruð milljarða síðan hann tók við embætti og var heilbrigðiskerfið þó fjársvelt vel áður en hann tók við embætti. Þess vegna eru aðeins sex fylki Bandaríkjanna sem geta skannað fyrir kórónavírus hjá fólki þó veikinnar hafi orðið vart fyrir einum og hálfum mánuði. Það eru sem sagt 44 fylki sem EKKI enn geta rannsakað eitt né neitt varðandi veikina og þar af leiðandi ekki fullyrt neitt um sýkingar. Flórida, Massachusetts, New York og Washington á meðal þeirra!!!!!!
B) Tæki og tól þeirra fylkja sem þó eiga réttu græjurnar eru það gömul og þreytt að það tekur sex daga að ganga úr skugga um sýkingu eftir að sýni hefur verið tekið. Bandaríkin í heildina geta aðeins skimað 350 einstaklinga per dag. Til samanburðar skima Kínverjar 120 þúsund manns daglega!!!!
C) Kaninn er eins og allir vita með einkarekna heilbrigðisþjónustu og dýrar tryggingar þarf til að fá svo mikið sem lyfleysu hjá lækni eða á sjúkrahúsi. Tugmilljónir Bandaríkjamanna ekki með neinar slíkar tryggingar og fá því enga þjónustu. Og þá kemur rúsínan í pylsuendanum: fjölmargir þeir sem vilja láta skima sig fyrir kórónavírusnum þurfa í tilfellum greiða háa upphæð fyrir þá rannsókn. Líkurnar á að Jón og Gunna Kani geti eða vilji eyða tug- eða hundruðum þúsunda í slíkt tékk eru litlar sem engar.
Ergo: fráleitt annað en leggja tvo og tvo saman og fá út að vírusinn er margfalt algengari í Bandaríkjunum en gefið er í skyn. Best að fara þangað með mikilli gát á næstunni. Eða halda eitthvað annað. Engin tilfelli skráð í Nuuk 😉







