Nokkur ár og dagur síðan Bretar réðu lögum og lofum í alheiminum. Nú er þessi þjóð svo illa farin að 260 þúsund þegnar lifa á götunni og draga fram lífið með klinki frá ókunnum. Plús auðvitað að senda kynlífsbrotamenn og annað vandræðafólk á hótel og gististaði þessi dægrin því öll önnur úrræði eru bókuð ár fram í tímann.

Kúkur á götum og sennilega ráð að bóka ekki þriggja stjörnu gistingu neins staðar í Bretlandi á næstunni.

Bretar eru tiltölulega vangefnir. Í það minnsta ráðamenn þessa lands sem leyfa velflestum „nýlendum” sínum og eyjum í næsta nágrenni að veita milljarðamæringum og stórfyrirtækjum frítt spil frá sköttum. Sköttum sem kannski yrðu til þess að fjölga úrræðum fyrir þær hundruð þúsundir sem ríkið þarf að aðstoða eftir langa fangelsisvist.

En alas, meðan svo er ekki, þá senda fangelsisyfirvöld afar vafasamt fólk á næsta þriggja stjörnu hótel eða gististað. Til dæmis kynferðisbrotamönnum að því er fram kemur hjá fjölmiðlinum Express þennan daginn.

Ókei, einhvers staðar verða vondir að vera en það væri kannski eðlilegt að láta erlenda ferðamenn vita af því að kynferðisbrotafólk sé mögulega að dúlla sér á sömu hótelum og erlent ferðafólk? Jafnvel erlent ferðafólk með börn með í för.

Sem sagt full ástæða til að leiða þriggja stjörnu hótel hjá ykkur ef för er heitið á þær slóðir næstu misserin. Jafnvel næstu árin því ekki eru bresk stjórnvöld mikið að senda aukapening í nauðsynlega þjónustu nú þegar landið stendur á barmi hyldýpis með Brexit…