Tíðindi

Ítalía og Frakkland eru „Heimsins Bestu“ áfangastaðirnir

  21/12/2010nóvember 21st, 2014No Comments

Heimsins bestu! Það er nafnið, hvorki meira né minna, sem Samtök bandarískra ferðaþjónustuaðila, USTOA, hafa gefið nýjum lista sem samtökin birta og eiga að gefa ferðalöngum hugmynd um bestu staði heims til hins og þessa.

Í samtökunum eru yfir 50 aðilar sem sérhæfa sig í utanlandsferðum Bandaríkjamanna og ættu að vita hvað þeir eru um að tala.

Þó er vart annað en hugsa um hversu hugmyndasnautt fólk starfar hjá samtökunum með tilliti til fyrirsjáanlegra staðanna sem þykja heimsins bestu.

Niðurstöðurnar eru:

Heimsins bestu ævintýrin:

  • Kosta Ríka

Heimsins besti arkitektúrinn:

  • Ítalía

Heimsins besta menningin:

  • Frakkland

Heimsins besta afþreyingin:

  • London

Heimsins bestu söguslóðirnar:

  • Egyptaland

Heimsins rómantískasti staðurinn:

  • Ítalía

Heimsins besti verslunarstaðurinn:

  • New York

Heimsins bestu gönguferðirnar:

  • Ítalía

Heimsins besti sælkerastaðurinn:

  • Ítalía