Kína heillar eðlilega marga og innlendar ferðaskrifstofur hafa reglulega boðið slíkar ferðir til sölu undanfarin ár. Þær hafa oftar en ekki selst upp.
Nú eru minnst þrír aðilar að bjóða slíkar ferðir á næstunni. Það eru Úrval Útsýn með fjórtán daga fjölbreytta ferð í byrjun júní á 529.900 krónur á mann. Kínaklúbbur Unnar býður einnig átján daga langa Kínaferð síðar í júní þetta sumarið á 520 þúsund krónur á mann. Síðast en ekki síst er Bændaferðir með eina slíka fjórtán daga ferð í september fyrir 549.900 krónur á mann.
Auga leið gefur að slíkar ferðir þó æði spennandi séu eru fjarri því léttar á pyngjunni. Fæstir ferðast eins síns liðs og ekki eiga öll pör eða hjón rúma milljón króna til að eyða í tveggja vikna langferð þó heillandi sé.
Mörgum hrýs hugur við að fara á eigin spýtur í slíkar ferðir enda æði flókið að skipuleggja slíkt og komast samt yfir margt og mikið eins og í skipulögðu ferðunum. Margir vilja hafa fararstjóra til halds og trausts.
Sé fólk sleipt í dönskunni er hægt að fá fínar Kínaferðir með dönskum ferðaskrifstofum talsvert undir því verði sem er í boði hér á landi.
Nú er FDM Travel ferðaskrifstofan að bjóða fjórtán daga Kínaferðir á ýmsum dagsetningum fram á sumar með dönskum fararstjóra og farið víða eins og í íslensku ferðunum og verðið á mann í þeirri ferð er milli 250 og 290 þúsund íslenskar krónur. Samtals fyrir tvo kosta þær ferðir milli 500 og 600 þúsund krónur og þannig fara næstum því tveir saman fyrir sama ferð og einn héðan.
Við þetta þarf að bæta ferðakostnaði til Kaupmannahafnar og þangað eru reglulega tilboð hjá Wow Air og Icelandair. Fram og aftur er því hægt að komast fyrir 40 þúsund krónur á mann eða 80 þúsund samtals. Alls kostar slík Kínaferð gróflega um 700 þúsund krónur og millilent í Köben en ekki Frankfurt eins og raunin er með ferðir þeirra íslensku.
Með þessum hætti getur fólk sparað sér allt að fjögur hundruð þúsund krónur fyrir keimlíkar ferðir og með danskan fararstjóra til halds og trausts.






