Oftar en ekki er Ísland og eða Íslendingar mjög ofarlega í alþjóðlegum samanburði og nýjasta dæmið toppsætið á lista Mossack Fonseca í Panama. Aðeins öðruvísi horfir þó við með íslenska vegabréfið.

Hið ágæta íslenska vegabréf takmarkaðra en margra annarra í Evrópu.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum getur landinn nú heimsótt ein 150 lönd heims án þess að þurfa annað upp á vasann en gilt vegabréf. Engar áritanir, enga stimpla, ekkert vesen.
Það kann að hljóma dágóður fjöldi en við erum samt eftirbátar margra annarra þjóða og þar á meðal allra nágrannaþjóða. Þjóðverjar og Svíar komast klakklaust til 157 þjóðlanda heims og Finnar, Bretar, Ítalir, Spánverjar, Frakkar og Svisslendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur til 156 landa. Meira að segja Kaninn, sem ekki er vinsæll á mörgum stöðum, þarf aðeins vegabréf eitt meðferðis til að komast inn í 154 lönd heims.
Við erum reyndar í neðri helmingi meðal Evrópuþjóða samkvæmt úttekt Fararheill eða í 21. sætinu. Vegabréf allra Norðurlandaþjóðanna duga betur en okkar.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að landið er bæði lítið og friðsælt. Engri þjóð stafar nein ógn af Íslandi. Það er lykilatriði oft á tíðum í samningum landa á milli. Nema ástæðan sé leti hjá utanríkisráðuneytinu…







