Tíðindi

Internet í öllum vélum Lufthansa

  07/12/2010september 30th, 2014No Comments

Flugfélagið Lufthansa í Þýskalandi verður að líkindum hið fyrsta í Evrópu sem býður upp á internetaðgang í öllum vélum sínum en uppsetningu á slíku á að vera lokið í lok næsta árs. Er þetta klárlega það sem koma skal en víða er þegar net í boði í innanlandsflugi í Bandaríkjunum og einstöku ferðum Virgin flugfélagsins.

Þurfa því farþegar þýska flugfélagsins ekki að sætta sig við misgóð afþreyingarkerfi á ferðum sínum heldur taka fram fartölvuna og gera og skoða það sem þeir vilja.

Sem kunnugt er eru engar áætlanir uppi hjá Icelandair né Iceland Express að bjóða upp á net í vélum sínum á næstunni.