Ef Guð er raunverulega til má með ólíkindum heita að hann leiði alltaf almennilegt fólk til dauða meðan bölvaðir skítablesar lifa af allt og alla. Nema auðvitað að himnaríki sé raunverulega stórkostlegur staður þar sem örfáir útvaldir spila á hörpu í skýjunum meðan aðrir íbúar leika sér í boccía eða spila Trivial Pursuit út í eitt.

Aðeins meiri traffík í Kringlunni á Þorláksmessu en á topp hæsta fjalls heims en ekki munar miklu.

Þokkalega óljóst hvernig umhorfs er í himnaríki þó rúm tvö þúsund ár séu liðin síðan herra Jesú Kristur yfirgaf þessa fallegu jörð. Enginn sjáandi fengið neinar nánari upplýsingar frá framliðnum þó gera megi ráð fyrir að þeir hafi flestir komist til himnaríkis. Það hefur jú varla nokkur sem sendur hefur verið til helvítis til að brenna um alla eilífð fengið sérstakt leyfi frá kölska til að tjilla með sjáanda og svara innantómum spurningum frá jarðríki.

Þess vegna fáum við seint svör við því hvers vegna skítablesi og glæpamaður á borð við Lýð Guðmundsson, annan Bakkavararbræðra, komst upp og niður hæsta fjall jarðar með bros á vör meðan minnst ellefu aðrir einstaklingar dóu drottni sínum á sama fjalli á sama tíma.

Þessi glæpamaður ekki sá eini sem kom Íslandinu, og hundruðum fjölskyldna, nánast lóðbeint á hausinn síðla árs 2008 sem lifað hefur af við svæsnar aðstæður. Ólafur Ólafsson framsóknar- og glæpamaður, var farþegi í þyrlu sem hrapaði til jarðar fyrir nokkru. Delinn labbaði því miður ferskur og flottur úr því slysi þökk sé björgunarsveitarmönnum. Sömu björgunarsveitarmönnum og milljarðamæringurinn Ólafur hefur aldrei styrkt um eina krónu. Við hér hefðum boðið til veislu ef Ólafur hefði misst hendur og fætur í því slysi en því miður hafði Guð hafði aðrar hugmyndir.

Ellefu einstaklingar hafa nú látist við að klífa hæsta tind jarðar og þá aðeins taldir þeir sem reyndu uppgöngu Í ÞESSUM MÁNUÐI!!!

Okkur vitandi hefja fjölmiðlar ekki upp til skýjanna mökkölvað fólk sem ekur um götur Reykjavíkur á 160 kílómetra hraða að gamni sínu. Ekki svo fjarri hættunni sem fyrir hendi er þegar einstaklingur ákveður að klífa Everest.

En það þykir megamóðins að klífa Everest þó slíkt sé aðeins á færi milljóna- og milljarðamæringa. Þykir þó sannað að þessir ellefu einstaklingar sem létust í þessum mánuði á Everest-fjalli, létu lífið sökum tafa og vesens annarra fjallgöngumanna. Þar á meðal Bakkavararbróður.

Kannski kominn tími til að fjölmiðlar fjalli um fólk sem eyðir milljónum til að klífa háan tind lengst í rassi sem stórskrýtið fólk sem á of mikinn frítíma en ekki sem miklar hetjur sem við hin ættum að líta upp til?