Athugulir viðskiptavinir Icelandair hafa efalítið rekið augun í að á vef flugfélagsins eru í boði mun fleiri áfangastaðir en flugfélagið almennt kynnir í auglýsingum. Þeir áfangastaðir merktir gulum lit en ekki bláum eins og hefðbundnir áfangastaðir.

Þægindin kosta aldeilis skildinginn gott fólk. Samsett mynd

Þægindin kosta aldeilis skildinginn gott fólk. Samsett mynd

Með guluna eru spennandi kostir eins og Moskva, Aþena, San Francisco, Tallinn, Ríga og Prag svo nokkrir séu nefndir. Það kemur hvergi fram fyrr en komið er inn í bókun að Icelandair er í raun ekkert að fljúga til þessara staða. Hérna er aðeins um að ræða flug með millilendingu og svo áfram með tilteknum samstarfsaðilum Icelandair.

Kostirnir við þennan ferðamáta sá að hægt er að bóka farangur alla leið á áfangastað og óþarfi að tékka sig inn að nýju við hverja millilendingu eins og sums staðar er raunin. Það getur í tilfellum verið kjörið en stundum breytir þetta litlu því biðtími milli flugferða getur verið það langur og flugvellir fremur leiðinlegir staðir að hrein unun er að stíga út fyrir hússins dyr. Jafnvel þó það kosti innritun eða öryggistékk að nýju.

En þessi þægindi sem þetta hefur í för með sér eru afar dýru verði keypt. Samkvæmt handahófskenndri úttekt Fararheill á sex „gulum“ áfangstöðum Icelandair getur verðmunur á flugi fram og aftur verið tæplega 200 þúsund krónur þegar borið er saman við verð sem finnst á flugleitarvél Dohop til sömu staða á sömu dögum.

Þetta sést glögglega á töflunni hér að neðan þar sem við tókum handahófskenndar ferðir fram og aftur og bárum saman við það sem Dohop fann á sömu dagsetningum. Lágmarks verðmunur reyndist vera 25 prósent en 40 til 70 prósenta verðmunur algengur. Þægindin eru því fjarri því gefins.

* Úttekt gerð kl. 15:30 þann 23. september 2015 hjá báðum aðilum samtímis á handahófskenndum dagsetningum. Biðtími og fjöldi millilendinga breytilegur eftir leiðum. Farangursgjald aukalegt í sumum tilfellum. Lægsta verð hjá báðum aðilum í öll skiptin.