Allt er til eins og mætir menn vita. Einnig að verðlauna sjálfan sig og gorta af því á opinberum vettvangi. Það gerir Icelandair á heimasíðu sinni með fyrirsögninni: Icelandair – Viðurkenning fyrir bestu stundvísina.

Stundvísin í lagi hjá Icelandair en óþarfi að verðlauna sig fyrir það

Stundvísin í lagi hjá Icelandair en óþarfi að verðlauna sig fyrir það

Fyrir utan hið augljósa; að annaðhvort er maður stundvís eða ekki mætti draga þá ályktun að flugfélagið sé að standa sig mætavel. Svo er þó ekki.

„Fréttin“ fjallar aðeins um brottfarir flugvéla félagsins frá Keflavíkurflugvelli og þar er félagið vissulega að standa sig ágætlega. Það mælist stundvíst í 92.6 prósent tilvika sem er gott og blessað en það er stjórnstöð félagsins sjálfs sem veitir viðurkenningunni viðtöku enda ábyrgt fyrir öllu hvað varðar stjórn véla Icelandair. Félagið er því að verðlauna sjálft sig.

Ristjórn Fararheilla man ekki til þess að félagið hafi nokkru sinni gefið út tilkynningu vegna slælegs árangurs þess hvað stundvísi varðar um margra ára skeið samkvæmt tölum Samtaka evrópskra flugfélaga (AEA). Þess utan er stundvísi flugfélags almennt ekki mæld frá einum stað heldur öllum brottfararstöðum félagsins.

Samkvæmt síðustu tölum um stundvísi frá AEA frá síðasta sumri var Icelandair í 11. sæti af 35 félögum hvað lendingar varðaði en því 14. þegar kom að brottförum. Var sá árangur með þeim betri sem félagið hefur náð um árabil.

Auglýsing Icelandair hér.