Einhver þarna úti gæti rekið upp stór augu en staðreyndin er að lægstu fargjöld Icelandair til Manchester seinni hluta næsta sumars eru vel samkeppnishæf við verð lággjaldaflugfélagsins easyJet.

Manchester er ágæt verslunarborg og þangað stutta að fljúga héðan. Mynd Mr.Dyson

Manchester er ágæt verslunarborg og þangað stutta að fljúga héðan. Mynd Mr.Dyson

Ekki er langt síðan við birtum verðkönnun okkar milli þessara sömu aðila til sömu borgar fram að sumri eins og lesa má um hér. Þar takmörkuð samkeppni og allt að helmingsmunur á verði aðra leiðina.

En sé aðeins leitað að lægsta verði aðra leið þennan daginn í júní, júlí og ágúst hefur staðan aðeins breyst Icelandair í vil. Það helgast líkast til af sterkara pundi og veikari krónu þó aðrar orsakir geti komið til en easyJet er breskt flugfélag og pundið hefur mjög styrkst að undanförnu gagnvart krónu.

Leitað að lægsta verði alla sumarmánuðina kl. 16:00 samtímis hjá báðum aðilum. Ein taska með hjá báðum svo og öll gjöld og skattar. Verð easyJet fært í krónur miðað við miðgengi dagsins.