Nú finnast nákvæmlega sömu hótel á nákvæmlega sama verði hvort sem þú leitar að gistingu hjá Icelandair eða Wow Air en hið fyrrnefnda hefur loks hent fyrir róða frekar úreltri gistileitarvél og liggur nú undir sæng hjá Booking.com eins og Wow Air hefur gert frá upphafi.
Þar með fer Icelandair upp um deild. Úr utandeild í fyrstu deild, hvað hótel- og gistileitarvélar varðar en fyrirtækið hefur undanfarin ár verið með samning við HRS. Það batterí að bjóða sæmilega á köflum en úrvalið minna en bakkelsið í bakaríinu í Hnífsdal.
Booking.com er einn risanna á hótelbókunarmarkaðnum og víst bjóðast þar á stundum allra fínustu tilboð en Fararheill brýnir þó áfram fyrir fólki að gera verðsamanburð. Það getur sparað merkilega háar upphæðir.
Stærsti plúsinn við Booking að flestra mati sú staðreynd að auðvelt er að afbóka gistingu án endurgjalds og sumir telja frábært líka að fyrirtækið býður verðvernd. Sem merkir að finni fólk sömu gistingu á lægra verði annars staðar endurgreiðist munurinn. Þó aðeins að fólk leggist í bréfaskriftir og tölvuæfingar því sýna þarf fram á og sanna að gisting sé ódýrari annars staðar. Kjánalegt að standa í slíku og nær lagi að bóka strax gistingu hjá því hóteli sem best býður miðað við óskir og sækja ekki einhvern sparnað eftir krókaleiðum.
Mínusinn við Booking hvað neytendur snertir er að sá leggur sérstaka áherslu á dýrari hótel og gististaði. Sem er ein ástæða þess að þar finnast allt að helmingi færri gistimöguleikar en til dæmis á hótelleitarvél Fararheill. Booking býður til dæmis aðeins 1.696 hótel og gististaði í London meðan úrvalið hjá Fararheill er kringum 3.200. Úrvalið skiptir þó verulegu máli þegar dvalist er í dýrum borgum eins og New York. Þar eru aðeins 555 gististaðir í boði hjá Booking en hjá Fararheill er fjöldi gististaða að velja um 1.423 talsins þegar þetta er skrifað.
Ergo; elskendur fákeppni gera vel í að bóka hjá Icelandair eða Wow Air. Hinir sem kjósa úrval og kasta ekki fjármunum á glæ leita hjá Fararheill. Í hvorum hópnum ert þú?








