Einhvers staðar á farsæla Fróni myndi fólk aldeilis tryllast á samfélagsmiðlum yfir 123 prósenta verðmun á sömu eða svipaðri vöru. Það er akkurat mesti verðmunurinn á flugi með Icelandair annars vegar og Delta Airlines hins vegar til Minneapolis og heim aftur í sumar.

Einn allmargra ljúfra staða í Minneapolis er skúlptúrgarðurinn. Mynd Walker Art Center

Við kíktum á fargjöld Icelandair og Delta til Minneapolis en það er ein þeirra bandarísku borga sem er í boði fyrir Frónbúa með fleiri en einu flugfélagi þessi dægrin. Minneapolis hefur löngum þótt móðins hjá verslunarförum sem týnst hafa þúsundum saman í Mall of America gegnum tíðina en borgin sjálf og ekki síður systurborgin St.Paul luma á ýmsu smekklegu líka svona fyrir þá sem ekki þola verslunarmiðstöðvar.

Við tókum þrjár stikkprufur á þremur mismunandi dagsetningum á fargjöldum flugfélaganna beggja fram og aftur fyrir einn einstakling og hvort sem um tilviljun er að ræða eður ei dylst engum að annað flugfélagið er nú helst til að okra á sínu fólki. Fyrsti stafur þess flugfélags er Icelandair.

Taflan sýnir lægsta verð á flugi báðar leiðir tiltekna daga. Í tilviki Icelandair var um sardýnufarrými að ræða í öllum tilvikum (Economy class) ef frá er talið eitt skipti í sardýnufarrými plús (Economy Class Flex). Hjá Delta miðast öll verð við svokallað Main Cabin eða aðalfarrými. Hjá báðum flugfélögum má taka með eina stóra tösku og afþreyingarkerfi og netaðgangur í boði hjá báðum.

Það forvitnilega við samanburð milli Icelandair og Delta er að bæði flugfélög eru að fljúga vélum sem komnar eru töluvert til ára sinna. Floti Delta er að meðaltali 17 ára gamall og floti Icelandair rúmlega 21 árs. Það getur því vart verið aukinn eldsneytiskostnaður sem fylgir jú eldri vélum sem útskýrir óhemju verðmun á þessari flugleið.

Hvað gæti nú orsakað slíkan verðmun annað? Ekki skal þó útilokað að íslenska flugfélagið bjóði betur aðra daga en ofangreinda. Munurinn er þó sláandi.

* Úttekt gerð af handahófi kl. 20.30 þann 15. maí 2017 hjá báðum aðilum samtímis. Leitað að lægsta verði báðar leiðir fyrir einn einstakling. Hafið hugfast að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru mjög örar.