Icelandair heldur áfram að gera sérstaka samninga við erlend flugfélög í því skyni að bjóða betri þjónustu. Nú hefur íslenska flugfélagið hoppað upp í rúm með bandaríska flugfélaginu Frontier Airlines.
Frontier er lágfargjaldaflugfélag með bækistöðvar í Denver í Bandaríkjunum en þangað hefur Icelandair reglulegt áætlunarflug í maí á þessu ári.
Geta þannig íslenskir viðskiptavinir Icelandair bókað ferðir til Denver og lengra gegnum bókunarvél Icelandair jafnvel þó aðrir sjái um flugið. Er um sams konar samning að ræða og Icelandair hefur við Alaska Airlines og JetBlue.
En samkvæmt umsögnum farþega á Skytrax er Frontier aðeins miðlungsgott batterí. Fær félagið 5,2 í einkunn hjá farþegum af tíu mögulegum.
Leit á Google Flight Search sýnir að Frontier er mjög samkeppnishæft í verði. Býður fyrirtækið lægstu verðin á flugleiðunum Denver-Tampa og Denver- Los Angeles svo dæmi séu tekin.
Þó birtir sú leit ekki allra lægstu tilboð Frontier sem finna má undir „specials“ á heimasíðu flugfélagsins. Tilboðin þar eru þó mestmegnis með afar stuttum fyrirvara að því er best verður séð.






