Jamm og jæja. Svo virðist sem rökfest gagnrýni okkar á flugfélagið Icelandair fari mjög miður niður. Átján undirskrifuð hatursskeyti þegar þetta er skrifað plús ótaldar feitar pillur á samfélagsmiðlum. Verst að ekki einn gagnrýnandi færir rök fyrir máli sínu.

Margir taka upp hanskann fyrir fyrirtæki sem um áratugaskeið var með einokun á öllum flugleiðum til og frá landinu.

Fararheill hefur um langa hríð verið gagnrýnin á flugfélagið Icelandair og það sem það fyrirtæki býður okkur „eigendum“ upp á. Eigendum sökum þess að flugfélagið er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða landsmanna og sem slíkt er í okkar eigu.

Algjör óþarfi er að vitna í þann fjölda fólk sem sent hefur okkur niðurlægingu fyrir að dirfast að gagnrýna þetta flugfélag eins og við gerðum hér. En við getum ekki á okkur setið með eitt skeytið:

„Ég hef lengi lesið vefinn ykkar og haft bæði gaman og gagn af. En nú er nóg komið af gagnrýninni. Grein ykkar „Sjö ástæður fyrir að hætta viðskiptum við Icelandair“ er svo fjarri lagi og ömurleg að engu tali tekur. Þið eruð ekki með réttu ráði þarna hjá Fararheill. Dóttir mín starfar hjá flugfélaginu og kann því góða sögu og við hjónin höfum ferðast með Icelandair um áraraðir vandræðalaust og kunnum starfsfólkinu frábæra söguna. Það er gaman að lesa greinar ykkar en þið verðið að hætta þessum ofsóknum því ofsóknir eru þetta sannarlega. Önnur hver grein ykkar er skrifuð til að niðurlægja Icelandair.“

virðingarfyllst,

Árni.

Árni þessi setur ekki eftirnafn svo við erum litlu nær um hver hann er en við virðum hans skoðun. Vel getur verið að við höfum farið offari gegn Icelandair síðustu misseri. Við ekki fullkomin frekar en aðrir.

Að því sögðu vekur athygli að þau hatursskeyti sem við höfum fengið inn á ritstjórn minnast ekki einu orði á staðreyndir. Enginn sendenda reynir að vefengja þau rök sem við berum fram til að varpa ljósi á að Icelandair, eða öllu heldur yfirstjórn flugfélagsins, er ekki vandanum vaxin. Skeytin eru meira og minna full af drullugum lýsingarorðum sem við endurtökum ekki hér. Við erum fífl, fávitar, vitleysingar og hommar líka ef marka má eitt skeytið. En enginn sendenda færir rök fyrir hvers vegna við erum fífl, fávitar, vitleysingar og hommar.

Kannski erum við fífl, fávitar og vitleysingar en það er alveg útilokað að við séum tómir hommar enda í ritstjórn bæði strákar og stelpur 🙂

En þangað til einhver gagnrýnenda sendir okkur pillu með rökum þá stöndum við fast við þá skoðun okkar að öll viðskipti við Icelandair eru slæm viðskipti. Eða hefur einhver tekið eftir að flugfélagið hafi lækkað fargjöld sín undanfarið þrátt fyrir að minnka um helming töskuheimildir farþega? Svo bara eitt dæmi sé tekið…