Icelandair hyggst endurskoða hugmyndir sínar um verulega aukinn fjölda flugferða og áfangastaða á næsta ári með tilliti til að líkur eru á að rekstraraðili Keflavíkurflugvallar, Isavia, íhugar að hækka til muna lendingar- og komugjöld á vellinum. Sá kostnaður færi beint á farþega flugfélaga sem hingað fljúga.
Segir Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair, koma til greina að endurskoða metnaðarfullar hugmyndirnar fyrir næsta ár ef af verður en ljóst að farþegar geti ekki endalaust staðið undir auknum kostnaði. Allt slíkt muni draga úr eftirspurn ferða hingað til lands og þannig hafa áhrif á áætlanir flugfélagsins.






