Verðmunur á flugi til London og heim aftur með vorinu og fram á sumar getur numið yfir 180 PRÓSENTUM eftir því hvort flogið er með Icelandair annars vegar eða lággjaldaflugfélögunum easyJet og Wizz Air hins vegar.

Geypilegur verðmunur reynist vera á fargjöldum Icelandair, easyJet og Wizz Air til og frá London næsta vor og sumar samkvæmt nettri úttekt Fararheill. Munurinn þegar mest lætur nærri 200 prósent.

Þetta má glöggt sjá á meðfylgjandi skjáskotum þar sem við leituðum lægstu fargjalda til og frá Lundúnum í apríl, maí, júní, júlí og ágúst. Verðmunur á fargjöldum reyndist mun meiri ef ekki var eingöngu leitað að allra lægsta fargjaldi í hverjum mánuði fyrir sig eða allt upp í 240 prósent þegar verst lét.

Hafa skal hugfast áður en dregnar eru ályktanir að hjá Wizz Air kostar aukalega að taka með handfarangur en að öðru leyti er um svipaða þjónustu að ræða. Þó eru vélar easyJet og Wizz Air mun yngri en vélar Icelandair og menga umtalsvert minna. Á hinn bóginn er Icelandair að brúka íslenskt starfsfólk með íslensk laun meðan þessi erlendu, og þá sérstaklega Wizz Air, eru staðsett í láglaunalöndum.

* Úttekt gerð hjá Google Flights klukkan 17:50 – 17.55. Verð getur breyst fyrirvaralaust.

Apríl:

Maí:

Júní:

Júlí:

Ágúst: