Tíðindi

Icelandair dýrast til Parísar í sumar

  19/05/2012desember 16th, 2013No Comments

Allra lægstu flugfargjöld Icelandair til og frá París þetta sumarið á þessum tímapunkti eru að meðaltali rúmlega fimmtán þúsund krónum hærri en samkeppnisaðila á þeirri leið samkvæmt úttekt Fararheill.is.

Sumar við Signu ekki amalegt. París reyndar fyllist af ferðafólki en er samt svo þess virði

Sumarið sem í garð gengur er gjöfult þeim Íslendingum sem elska að ferðast. Ekki aðeins er að bætast nýtt íslenskt flugfélagið við flóruna heldur og fljúga hingað í sumar fjölmörg erlend flugfélög sem vitaskuld vilja eiga viðskipti við Íslendinga eins og aðra.

Þetta er ávísun á öllu meiri samkeppni en ríkt hefur á Íslandi um áraraðir og því aldeilis tilefni til að kanna reglulega hvaða kostir eru ódýrastir hverju sinni.

Þræddi ritstjórn vefi þeirra fjögurra flugfélaga sem bjóða ferðir til og frá París þetta sumarið og fann lægsta mögulega verð í hverjum mánuði fyrir sig. Heilt yfir er það lágfargjaldaflugfélagið Transavia sem best býður eins og sést á meðfylgjandi töflu.Wow Air kemur næst, þá Iceland Express og Icelandair rekur lestina og er töluvert dýrara að fljúga með þeim en öðrum.

Þá er þó ekki öll sagan sögð því Transavia krefur flugfarþega um aukagjald fyrir allan farangur yfir 10 kílóum meðan þau íslensku setja markið við 20 kíló. Sé það tekið inn í myndina er verðlagning Transavia og Wow Air ósköp svipuð. Þá er afþreyingarkerfi Icelandair frítt en að öðru leyti á ekki að vera marktækur munur á þjónustu þessara flugfélaga. Öll taka þau til dæmis gjald fyrir veitingar um borð.

Þá skal og hafa í huga að íslensku flugfélögin þrjú fljúga á Charles de Gaulle flugvöllinn fyrir norðaustan Parísarborg meðan Transavia ferjar sitt fólk til Orly flugvallar fyrir sunnan borgina. Orly er tæknilega séð varaflugvöllur en De Gaulle völlurinn er kominn feitt til ára sinna og ferðatími til að frá báðum völlum inn í miðborg er svipaður.