Tíðindi

Tilboð á tilboð ofan í gangi

  19/05/2012No Comments

Öll þrjú flugfélög landsmanna bjóða nú sértilboð til ýmissa áfangastaða á lægra verði en gengur og gerist.

Sumar í Helsinki er fráleitt leiðinlegur tími. Íslendingar eru þar auðfúsugestir en borgin er nokkuð dýr

Þannig eru nú nokkur ódýr fargjöld í Heita potti Iceland Express til London og Kölnar. Wow Air býður sértilboð til Varsjá í Póllandi og Kaunas í Litháen til miðnættis og enn er í gildi tilboð Icelandair til Alicante, Billund og Helsinki.

Með Iceland Express eru nokkur sæti til London og Kölnar í maí og júní nú til sölu á rúmar fjórtán þúsund krónur aðra leiðina með sköttum.

Wow Air býður flug til Kaunas í Litháen á 14.900 krónur aðra leiðina og sama verð aðra leið til Varsjár en tilboðið gildir aðeins í ferðir í júní.

Önnur leiðin til sólkysstra stranda í Alicante er nú í boði hjá Icelandair á 29.900 krónur með sköttum og gjöldum meðan önnur leiðin til Billund í Danmörku og Helsinki í Finnlandi fæst á 14.900 til hádegis á mánudag. Vekur þar athygli að bæði er þetta í fyrsta skipti sem hraðtilboð þess flugfélags eru í boði lengur en einn sólarhring en ekki síður að þau gilda í ferðir á annatíma. Þannig er ferðatímabilið til Alicante frá júní og fram til 25. júlí og til Helsinki og Billund er komist frá miðjum júní fram til haustsins. Er þetta góð þróun fyrir neytendur á Íslandi.