Icelandair hefur hætt að taka við reiðufé sem greiðslu um borð í vélum sínum að því er fram kemur á vef mbl þennan daginn. Tíðindi auðvitað en blaðafólkið skautar algjörlega fram hjá þeirri staðreynd að slíkur gjörningur er líklega ólöglegur.

Kortalaust fólk fær enga þjónustu hjá Icelandair eftirleiðis.

Kortalaust fólk fær enga þjónustu hjá Icelandair eftirleiðis.

Það hefur lengi pirrað mörg fyrirtækin að taka við greiðslum í beinhörðum peningum enda líta margir svo á að rafrænir peningar hafa alfarið tekið við sem greiðslumiðill hérlendis. Öll séum við með kredit- eða debitkort fyrir utan að rafgreiðslur með snjallsímum séu að detta inn fyrir alvöru. Það er framtíðin.

Sjaldan kemur fram að helsta ástæða þess að fyrirtæki eru á móti peningum er að það skapar vesen umfram það að sjá færslu þjóta rafrænt fram á skjánum. Það þarf að eiga skiptimynt, peningana þarf að geyma á öruggum stað, flytja þá í banka og svo framvegis. Umstangið gæti meira að segja skapað heilt starf hjá stærri aðilum. Og hvaða fyrirtæki vill fjölga störfum svo niður komi á arðgreiðslum til eigenda…

Fyrir utan mikið óhagræði þeirra sem kjósa að nota ekki kort af neinu tagi, og þeim fer fjölgandi sökum þess hve auðvelt er að fylgjast með fólki sem slíkt notar af hálfu fyrirtækjanna, sem og þá staðreynd að það er enginn sársaukaþröskuldur þegar greitt er rafrænt svo fólk eyðir gjarnan meiru með korti en peningum, þá er þetta líka beinlínis ólöglegt samanber lög um gjaldmiðil Íslands.

1. gr. Gjaldmiðill Íslands nefnist króna, er skiptist í hundrað aura.
Í skiptum skulu notaðir peningaseðlar og slegnir peningar (mynt).
2. gr. Seðlabanki Íslands hefur einkarétt til að láta gera og gefa út peningaseðla og láta slá og gefa út peninga úr málmi.
3. gr. Peningaseðlar þeir, sem Seðlabanki Íslands lætur gera og gefur út, og peningar þeir, sem hann lætur slá og gefur út, skulu vera lögeyrir í allar greiðslur hér á landi með fullu ákvæðisverði.

Einhver kann að halda að þar sem lögin tala um „allar greiðslur hér á landi“ eigi lög þessi ekki við um sölu í flugvélum í 30 þúsund fetum. Það er rangt. Þetta gildir fyrir öll íslensk fyrirtæki hvort sem þau eru við Laugarveg eða í loftinu yfir Benidorm.

Með öðrum orðum: rafrænir peningar eru ekki jafngildir reiðufé sem greiðsla samkvæmt íslenskum lögum. Sem þýðir að hafni Icelandair að taka við reiðufé um borð er komin þessi líka fína ástæða fyrir lögsókn til að fá úr málinu skorið.