Engar breytingar hafa enn verið gerðar á þeim áætlunum Icelandair að fjölga áfangastöðum sínum til muna á næsta ári.
Var það tilkynnt í síðasta mánuði en skömmu síðar dró framkvæmdastjóri félagsins Birkir Hólm Guðnason í land ef stjórnvöld hyggðust leggja aukna skatta á ferðaþjónustuna eins og lagt er til í fjárlagafrumvarpi næsta árs.
Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur enn engin breyting orðið á fyrirætlunum flugfélagsins að svo stöddu. Beðið er ákvarðanna stjórnvalda sem enn liggja ekki að fullu fyrir enda vefst væntanlega fyrir mönnum að setja háa tálma í þeirri atvinnugrein sem hvað mest sóknarfæri eru í á landinu.






