Tíðindi

Iceland Express skal endurgreiða farþega

  07/12/2010september 30th, 2014No Comments

Flugfélagið Iceland Express skal endurgreiða farþegum sínum að fullu helgarferð til Berlínar með gistingu sem féll niður vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli. Er þetta niðurstaða Neytendastofu sem fékk kvörtun eftir að flugfélagið neitaði að endurgreiða annað en flugið sjálft.

Forsagan er Neytendasamtökin sendu Neytendastofu erindi vegna viðskiptahátta Iceland Express. Barst samtökunum kvörtun frá neytanda vegna viðskipta hans en hann hafi keypt sér þriggja nátta utanlandsferð með gistingu dagana 16. til 19. apríl 2010, með Express ferðum, sem séu í eigu Iceland Express ehf.

Vegna eldgoss í Eyjafjallajökli hafi flugi verið aflýst og ferðin því fallið niður. Í kjölfarið hafi neytandinn farið fram á endurgreiðslu ferðarinnar en fékk þau svör að slíkt væri ekki endurgreiðanlegt né heldur skaðabótaskylt þar sem eldgos heyrir undir ófyrirsjáanlegar aðstæður. Var farþeganum boðin endurgreiðsla flugsins eða sambærlega ferð með 25 þúsund króna milligreiðslu.

Komst Neytendastofa að því að umrædd ferð væri öll endurgreiðanleg þar sem um alferð var að ræða, flug og gisting, en áfrýjunarnefnd Neytendastofu tekur ekki afstöðu til málsins vegna tækniatriða.

Iceland Express skal því greiða og eina leið þeirra sem eftir er að fara er gegnum dómstóla.

Fararheill.is hefur farið fram á upplýsingar frá Iceland Express um endurgreiðslur sínar til handa farþegum sem urðu fyrir þessari reynslu í vor en án árangurs. Icelandair hins vegar lýkur við sitt uppgjör vegna þessa nú um áramótin.

Ákvörðun áfrýjunarnefndar hér.