Tíðindi

Iceland Express hættir við Belfast

  02/03/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Iceland Express hefur hætt við ferðir sínar til Belfast á Norður Írlandi en áætlunarflug þangað átti að hefjast í vor. Stóð til að fljúga þangað samhliða áætlunarflugi til Edinborgar og mun sú leið halda sér. Í staðinn er stefnan á beint flug til Belfast á næsta ári.

Segir Matthías Imsland, forstjóri IE, við fréttavef BBC að til standi þó ennþá að hefja flug til Belfast árið 2012 en að borgin verðskuldi beint flug eins og ráðgert er með flug félagsins til Edinborgar.

Samkvæmt heimildum Fararheill.is er ástæðan þó ekki eingöngu sú að „Belfast verðskuldi beint flug“ heldur hitt líka að áhuginn reyndist takmarkaður enda þurftu viðskiptavinir að millilenda í Edinborg á útleiðinni.