Það tekur kannski enginn eftir því en hundruðir manna vinna baki brotnu eldsnemma hvern einasta dag á helstu sólarströndum Mexíkó. Vinnu sem verður að ljúka áður en velborgandi ferðamenn ná að núa stírur úr augum hvern dag.

Hvern einasta morgun þarf að senda út her fólks til að hreinsa strendur Mexíkó af þangbreiðum sem setjast að á ströndunum og valda tómum leiðindum. Skjáskot
Vandamálið ekki nýtt af nálinni við botn Karíbahafs en aldrei hefur ástandið verið verra en nú samkvæmt þarlendum miðlum. Á hverjum sólarhring berast nú fleiri tonn af þangi á margar helstu strendur Mexíkó og það allt þarf að fjarlægja prontó áður en ferðamenn á svæðinu vakna til lífsins. Gallinn sá að þangið skilur eftir sig töluverða fýlu og illa þefjandi fnyk lengi eftir að þangið hefur verið fjarlægt.
Kveður svo rammt að vandamálinu að stjórnvöld hafa kallað til herinn, hvorki meira né minna, til að aðstoða ferðaþjónustuaðila á stórum svæðum við að ferja þangið burt en slíkt þarf að gera hvern einasta sólarhring því þangbreiður er ekki það sem erlendir ferðamenn koma til að njóta á sendnum ströndum landsins. Enn síður er spennandi að vakna upp á fínu hóteli með fúleggjalykt um allar trissur.
Þrátt fyrir viðamiklar aðgerðir telja stjórnvöld í Mexíkó ljóst að ferðamönnum til stranda landsins Karíbahafsmegin fækki um minnst 30 prósent á næstunni frá því sem eðlilegt þykir. Allra stærsti gallinn þó sá að þetta tiltölulega fátæka land getur alls ekki spornað gegn móður náttúru í þessum efnum. Þangbreiður þenjast nefninlega mjög út með hækkandi sjávarhita og óvíða hækkar hitastig í sjónum meira en í Mexíkóflóa.
Vandamálið er því, illu heilli, líklega komið til að vera því ekki er heimurinn að kólna mikið á þessum síðustu og verstu.







