Nágrannar okkar til suðvesturs eru dálítið mikið sniðugir. Fyrst ferðafólk kemst ekki til Færeyja vegna Covid-19 hefur ferðamálaráð eyjanna ákveðið að koma Færeyjum heim í stofu fyrir áhugasama.

Sérdeilis flott hugmynd hjá frændunum í Færeyjum. Skjáskot
Undanfarnar vikur hafa tugir landsmanna flakkað um forvitnilega staði Færeyja með myndavélar og beinstreymt túrum sínum á netið.
Forvitnir geta því nokkrum sinnum á dag tekið túra um fagra staði landsins í þráðbeinni gegnum netið á þessum vef hér. Það sem meira er, áhorfendur geta að hluta til ákveðið hvert göngufólkið fer eða hvað það gerir í túrnum. Allt í beinni.
Alveg brilljant hugmynd og ekki ólíklegt að stöku áhorfendur taki þvílíkt andköf af hrifningu að þeirra fyrsta verk eftir faraldurinn verður að bóka ferð til Færeyja. Margt vitlausara en það 😉







