Margir þarna úti mikla fyrir sér flug alla leið til Tælands til að njóta lífsins og prófa nýja hluti. Flugið jú langt og víst dálítið dýrt miðað við helgartúr til Amsterdam eða Alicante. En þá gleymist stundum að verðlag í Tælandi er 120% lægra en heimavið og það gildir líka um gistingu 🙂

Ekki trúa okkur. Kíktu á neðangreind dæmi sem við tókum af handahófi á mismunandi dagsetningum fyrir mismunandi langa dvöl á mismunandi stöðum á næstu mánuðum á hótelbókunarvef okkar. Reiknaðu svo hvort dýrt flugið og ódýr gistingin kemur ekki bara út á lægra verði en ódýrt flug og dýr gisting á Kanaríeyjum 😉

Þriggja stjörnu sólarhringur í Bo Phut á 2.616 krónur.

Sjö nætur á fjögurra stjörnu Krabi fyrir heilar nítján þúsund krónur alls.

Þrjár vikur á fjögurra stjörnu hóteli í Pattaya fyrir heilar 118 þúsund krónur.

Fimm stjörnur, fjórar nætur í Chiang Mai fyrir 36 þúsund kall.

Og svo framvegis og svo framvegis 😉