Ertu að gera eitthvað sérstakt frá miðjum mars til miðs apríl á næsta ári? Áttu 200 kall til að henda í tóma vitleysu og njóta þannig fjögurra magnaðra áfangastaða á heimskringlunni í einum og sama túrnum?

Vikudvöl á títuprjónseyju á miðju Kyrrahafinu er eitthvað til að monta sig af í næstu fermingarveislu.

Lífskúnstnerar, sjúkraþjálfarar og sálfræðingar mæla mikið til með sama pakkanum til að þú náir geðheilsunni á ný án þess að punga út fyrir fokdýrum lyfjum. Drífðu þig út, hittu nýtt fólk, upplifðu nýja hluti og komið heim fersk og ilmandi eins og nýslegið gras klár í hasarinn hér heima.

Þú gætir prófað enn einn túrinn til Torrevieja eða Tenerife fyrir 150 kallinn. Eða þú gætir spreðað 250 þúsund krónum í æða merkilegan flugtúr um fjóra verulega mismunandi staði á heimskringlunni. Og það á allra besta tíma þegar veturinn er enn að þvælast fyrir mannfólkinu á Fróni en lóan rétt ókomin til að rétta hlutföllin sumrinu í hag.

Á vef Skyscanner má nú finna æði merkilegan díl hjá einhverju besta flugfélagi heims. Þar um að ræða flugpakka til fjögurra æði merkilegra staða þar sem fólki gefst færi á að dvelja í vikustund áður en áfram er haldið. Pakkinn gildir frá London um miðjan mars á næsta ári og hann endar í London rúmlega mánuði síðar.

Og hvað er svo merkilegt við þetta allt saman?

Jú, flug frá London til Los Angeles í Bandaríkjunum, frá Los Angeles til Cook-eyja í miðju Kyrrahafinu, frá Cook-eyjum til Auckland á Nýja-Sjálandi, frá Auckland til Singapore og frá Singapore til London aftur.

Rúmlega mánaðarlangur túr (gisting ekki innifalin) til staða sem hver um sig kostar ferðalang vel rúmar hundrað þúsund krónur að þvælast til svona almennt. Hvað þá með einu besta flugfélagi heims sem gefur þér vikutíma á hverjum stað fyrir sig. Allt klabbið fyrir 1312 pund. Sem gera svo mikið sem 204 þúsund krónur íslenskar þegar þetta er skrifað. Plús sirka 30 þúsund krónur fram og aftur til London héðan 🙂

Við hér erum að slefa meðan við skrifum…

Nánar hér.