Við höfum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar gegnum tíðina bent ferðaþyrstum á að stöku sinnum má negla sæti á Saga Class Icelandair á lægra verði en sardínupakkann. Það yfirleitt vegna mistaka. Og nú höfum við fundið annan aðila sem gerir mistök reglulega 🙂
Ók, kannski eru það ekki mistök en undarlegt er það þó í þessum harða heimi flugsamkeppni að stórflugfélagið British Airways býður á köflum LÆGRA verð fyrir flug með tösku en flug án tösku. Dæmi um slíkt má sjá á skjáskotinu hér til hliðar.
Það sem styður þá ályktun að ekki sé um mistök að ræða er sú staðreynd að við höfum rekist á þetta einum fimm sinnum síðustu 30 dagana eða svo. Fargjald án alls kostar meira en fargjald með tösku innifalda.
Um að gera fyrir áhugasama að víkka sjóndeildarhringinn ef hugur leikur á að fljúga með þeim bresku. Skoða líka önnur farrými á sömu dagsetningum svona til öryggis 🙂
Eðli máls samkvæmt er best að vera ekkert að láta BA vita af málinu, ef vera skyldi að þetta séu helber mistök.
Þetta er þó á pari við það sem við hér höfum bent á gegnum tíðina; það getur sparað flugfélögum tíma, vesen og kostnað ef verð á innrituðum farangri er LÆGRA en að taka með sér handfarangur. Handfarangur er bara þægindi út í eitt. Kemst í tannburstann, lyfin og getnaðarvarnirnar með því einu að standa upp úr sætinu þínu og kemst út á augabragði þegar lent er. Slíkur munaður á, ólíkt prógramminu hjá flestum flugfélögum, að kosta feitt. En raunin er önnur. Þú yfirleitt færð að hafa handfarangur frítt með en greiðir fúlgur fyrir að innrita töskudruslu. Töskudruslu sem þú bíður svo eftir í 40 mínútur eftir lendingu…
Séu vegir Guðs undarlegir eru vegir flugfélaga stórundarlegir 😉







