V ið skulum bara viðurkenna það. Stór ástæða þess að okkur flest langar að ferðast út fyrir steina þessa lands er til að komast í fjölbreyttara úrval verslana erlendis sem jafnframt bjóða vörur á töluvert lægra verði en hér er raunin.

Það er ágætt að eyða peningum í Edmonton borg samanborið við Reykjavíkina. Mynd Jeff Wallace

Það er ágætt að eyða peningum í Edmonton borg samanborið við Reykjavíkina. Mynd Jeff Wallace

Samtök verslunarinnar mega mótmæla til endaloka heimsins en staðreyndin er samt sem áður sú að þær eru vandfundnar verslanir erlendis þar sem ekki má gera mikið betri kaup en hér heima. Gildir þar einu hvort litið er vestur um haf eða austur og miðað við verðlag almennt en ekki á útsölutímum þegar vörur fást töluvert ódýrari en ella.

Ritstjórn hefur safnað saman upplýsingum um verðlag á nokkrum vinsælum hlutum og/eða afþreyingu í nokkrum yndislegum borgum heimsins og mun birta nú og næstu daga og vikur.

Röðin komin að hinni kanadísku Edmonton en þangað var um tíma beint flug frá Íslandi um hríð þó ekki sé það lengur. Edmonton er þokkalegt krummaskuð meðal Kanadamanna en borgin státar þó af stærstu verslunarmiðstöð í hinum vestræna heimi og það gæti heillað margan Íslendinginn.

Miðað við gengi krónu gagnvart kanadískum dollar í byrjun júlí 2021 er verðlag í verslunum hér almennt 27 prósent lægra en í verslunum í Reykjavík. Sem dæmi kosta vinsælar Levi´s gallabuxur rétt tæpar átta þúsund krónur, vinsæl týpa af Nike hlaupaskóm rúmar tólf þúsund krónur og flott jakkaföt frá lúxusmerkjum þetta 40 þúsund og uppúr.

Munurinn minnkar þó óðum þegar kemur að mat og drykk og afþreyingu. Máltíð á góðum veitingastað í Edmonton kostar um 5 prósent meira almennt en sams konar máltíð í Reykjavík. Ódýrt út að borða hér kostar um og yfir fjögur þúsund krónur og ætli fólk á betri stað og borða þríréttað er kostnaðurinn kominn vel yfir átta þúsund krónur að meðaltali. Stór bjór á veitingastað/bar fæst á 600 til 800 krónur.

Ferð með strætisvagni innan borgar í Edmonton kostar 340 krónur og startgjald leigubifreiða rétt rúmar 360 krónur. Lítraverð á bensíni kostar víðast hvar 120 krónur.

Sjálfsagt er að benda á að fólk verður sér úti um gistingu í Edmonton á allra, allra hagstæðasta verði með hótelbókunarvél Fararheill. Þann sparnað má nota til að kaupa enn meiri varning í hinni gígantísku West Edmonton Mall verslunarmiðstöð. Þá leitarvél og ýmsar skemmtilegar upplýsingar um borgina á mannamáli má finna í vegvísi okkar um Edmonton hér.