V art fór framhjá neinum fyrir nokkrum árum síðan þegar Íslendingur var handtekinn á flugvelli í Tyrklandi og gefið að sök að hafa ætlað að smygla fornmunum úr landi. Það endaði illa og er víti til varnaðar en það er fleira en fornmunir sem gestir í Tyrklandi ættu að láta vera að kaupa.
Fleiri og fleiri Íslendingar heimsækja Istanbúl eða aðra staði í Tyrklandi og margir á eigin vegum. Borgin sú er stór og yfirgnæfandi fyrir fölbleika Íslendinga og þar þyrmir auðveldlega yfir marga. Sem gerir það auðvelt fyrir þarlenda að notfæra sér gesti sína.
Fyrir utan margar kostulegar byggingar er það efalítið Grand Bazaar markaðurinn sem allir gestir hingað heimsækja og þar á eftir sennilega Kryddmarkaðurinn eða egypski markaðurinn eins og sá heitir á frummálinu.
Á báðum þessum stöðum og reyndar mun víðar er að finna ýmsar vörur sem sérstaklega er beint að ferðafólki sem ekki veit betur og þær seldar þúsundfalt dýrar en eðlilegt er meðal heimamanna sjálfra.
Dæmi er þetta er hið tyrkneska víagra eða mesir macanu á tyrknesku. Þetta undraefni finnst alls staðar á mörkuðum og sölumenn grimmir að auglýsa hvaða kraftaverk gerast í svefnherberginu eftir notkun. Auðvitað sakar ekkert að prófa en það ætti að vera ljóst að væri raunveruleg virkni af þessu efni, sem er oftast nær aðeins heslihnetur í kryddmauki sem troðið er inn í þurrkaðar fíkjur, væri lítið að seljast af raunverulegu víagra. Önnur vísbending er að Tyrkir sjálfir nota þetta ekki til afreka í svefnherbergjum heldur gegn kvefi og smákvillum. Fyrir utan að bæði fíkjur og heslihnetur er góðar og hollar hefur aldrei sannast sérstakur lækningarmáttur. Og álagningin á þessari vöru á mörkuðunum er mörg hundruð prósent umfram það verð sem Tyrkir sjálfir greiða fyrir.
Önnur markaðsvara sem er fals í 99 prósent tilvika er tyrkneskt saffron. Það finnst líka sömuleiðis hjá fjölmörgum söluaðilum á mörkuðunum og yfirleitt í fallegum umbúðum í þokkabót. En þetta tyrkneska saffron er ekki saffron. Saffron framleiðsla í Tyrklandi er afar lítil og kryddið því afar dýrt og ekki glæta að það fáist á risamörkuðum fyrir slikk og ingenting. Hins vegar er leið framhjá þessu því flestir sölumenn selja líka íranskt saffron þó ekki sé það eins sjáanlegt í stöndum þeirra. Íranskt saffron er undantekningarlítið alvöru en það kostar líka 20-falt meira. Gerðu ráð fyrir að greiða að lágmarki 1.600 krónur, 30 lírur, fyrir grammið.
Ofangreint er ekki einskorðað við markaði í Istanbúl heldur þvert á móti alls staðar þar sem erlent ferðafólk gerir sig heimakomið.
Að síðustu skal hafa í huga að það margborgar sig að vita sitt lítið um prútt hér eins og annars staðar á slíkum mörkuðum. Ýmsum þykir það óþægilegt en það er venjan í fjölmörgum löndum heims og undantekningarlítið á útimörkuðum.





