Það borgar sig að spenna beltin fyrir flugtak í þotum og vera með beltið spennt alla ferðina. Berast af og til fregnir af smávægilegum meiðslum fólks vegna ókyrrðar á flugi en sjaldan eru meiðsli svo alvarleg að mænuskaði hlýst af. Það gerðist þó síðasta sumar.
Atvikið átti sér stað í vél SAS í ágúst en þá slösuðust tveir flugþjónar sem ekki voru spenntir niður þegar vélin féll harkalega niður um svokallað loftgat, air pocket, þegar flogið var gegnum ókyrrð. Vildi ekki betur til en tveir flugþjónar sem voru að sinna störfum sínum slösuðust. Annar þeyttist upp í loft vélarinnar en slasaðist ekki alvarlega.
Hinn flaug upp í loft og lendi svo harkalega á sæti sínu að viðkomandi hlaut mænuskaða af. Var flugþjónninn færður á spítala strax við komu til Heathrow og varð að dvelja þar í tíu daga.






