Ferðaskrifstofur færa sig nú töluvert upp á skaft ef marka má dótturfyrirtæki Icelandair: ferðaskrifstofuna Vita. Þar er farið fram á að „pakkað sé skynsamlega“ eigi farangur að fylgja með á áfangastað.
Kröfu þessa má sjá á skjáskotinu hér til hliðar en þar mælist ferðaskrifstofan til þess að fólk pakki eins og fólk ellegar séu líkur til að farangurinn verði skilinn eftir.
Afar erfitt er að sjá hvaða rétt ferðaskrifstofan hefur til að skikka viðskiptavini til að pakka skynsamlega. Það er jú ekki eins og fólki sé ekki heimilt að taka með 20 kílóa tösku og golftösku með í þessu tilfelli. Annað óeðlilegt enda um golfferð að ræða.
Engar leiðbeiningar eða skýringar finnast heldur á vef Vita hvað telst vera skynsamlegt í þessum efnum. Á maður að rúlla fötunum í búnt? Sleppa loðpelsinum? Þarf fólk að opna töskur og sanna skynsamlegheitin við innritun?
Svo lengi sem fólk er undir þyngdartakmörkunum í auglýstri ferð má hver sem er pakka hvernig sem hann eða hún vill. Skynsamlega eða óskynsamlega. Finni forsvarsmenn Vita hjá sér þörf á að setja út á farangur sem greitt hefur verið fyrir er lágmark að lista reglur í því sambandi. Ella er Vita skaðabótaskylt ef farangur sem greitt hefur verið fyrir er ekki samferða eigandanum.







