„Við vinnum saman að því að vera hluti af góðu ferðalagi innanlands sem utan.”

Toppþjónusta? Ekki er það upplifun notenda…
Svo segir í stefnuyfirlýsingu ríkisfyrirtækisins Ísavía. Ekki liggur þó ljóst fyrir hvernig farþegar um flugvelli landsins geta unnið að því með Ísavía að bæta ferðalög innanlands sem utan. Kannski með því að fá sér kaffibolla með þúsund prósent álagningu eða sitja þöglir í sætum sem eru svo óþægileg að SS-sveitir Himmlers hefðu sýnt mikla velþóknun.
Það sem Ísavía auglýsir og montar sig af virðist þó ekki eiga mikinn grunn þarna úti í því sem við köllum raunveruleikann. Allavega ekki sé mið tekið af flugvefnum Skytrax. Í ofanálag við að taka þar saman einkunnir notenda hjá hinum og þessum flugfélögum heimsins þá er notendum líka heimilt að tjá sig um flugvelli heimsins. Og þar virðist Ísavía ekki alveg vera að fylgja eftir stóryrðum í auglýsingum…




Fjórar stjörnur af tíu mögulegum er Leifsstöð með samkvæmt notendum Skytrax þegar þetta er skrifað. Völlurinn sem sagt FALLINN og nær ekki einu sinni fjórum komma níu.
Kannski, bara kannski, hefur eitthvað með okurálagningu að gera. Kannski eitthvað með að allir þurfi úr skónum við öryggisleit því allir vita jú að hryðjuverkamenn geyma sprengiefni mjög gjarnan í táfýluskóm. Kannski eitthvað með það að gera að illa borguðu staffinu á gólfinu er slétt sama um upplifun farþega. Eða kannski þykir fólki undarlegt að borga þúsund kall fyrirþreytta, skitna samloku hjá stað sem greiðir enga skatta til ríkisins. Óhætt að fullyrða að ef Bónus þyrfti enga skatta að greiða til Bjarna Ben fengjum við samlokuna á hundrað og fimmtíu kall eða svo…
En kannski er ástæðan önnur og eðlilegri fyrir því að Leifsstöð slefar í fjórar stjörnur af tíu mögulegum…







